Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 12:15
Elvar Geir Magnússon
Þú getur orðið heimsmeistari í skemmtilegum íslenskum leik
Getur þetta lið orðið heimsmeistari?
Getur þetta lið orðið heimsmeistari?
Mynd: https://www.wintheworldcup.com/
HM hefst í kvöld en í vikunni fór í loftið einfaldur en skemmtilegur HM leikur á slóðinni wintheworldcup.com.

Um er ræða 'draft' leik þar sem frægustu HM lið sögunnar koma við sögu, þar á meðal Ísland 2018! Leikurinn gengur út á að velja einn leikmann úr hverju liði og það er tilviljanakennt hvaða liði maður fær að draga úr.

Þrisvar getur sá sem tekið þátt beðið um nýtt lið án þes að velja leikmann. Leikurinn tekur aðeins nokkrar mínútur í spilun og er hrikalega ávanabindandi eins og við á skrifstofu Fótbolta.net höfum fengið að kynnast.

„Ég og Árni Torfason vorum að ræða um bestu lið HM sögunnar sem og bestu leikmennina. Á sama tíma vorum við að spila leik sem heitir 82-0 og er körfuboltaútgáfa af svona draft leik. Þar sem við höfum báðir verið virkir í forritun fór umræðan fljótt yfir í að búa til HM leik sem allir geta spilað og snýst um að það sé hægt að velja leikmenn úr sögufrægum liðum," segir Vilhjálmur Þ. Á. Vilhjálmsson sem forritaði leikinn ásamt Árna Torfasyni.

„Í grunninum eru því bestu lið sögunnar ásamt liðum sem hafa eitthvað sérstakt. Maður fær handahófskennd lið til að velja leikmenn úr og getur alltaf valið einn í einu. Hins vegar stjórnar maður ekki öllu. Kannski færðu Brasilíu árið 1970 og velur Pelé en færð svo Bandaríkin 1994 og þarft að velja Alexi Lalas. Það er hins vegar 3 respin og svona þannig að maður endar alltaf með mjög gott lið."

„Hins vegar er ekki nóg að vera með gott lið. Maður verður að vera með geggjað lið og líka að vera heppinn. Því eins og við Íslendingar þekkjum, þá geta allir unnið alla, burtséð frá tölfræði. Það er erfitt að verða heimsmeistari og þess vegna er mjög erfitt að verða heimsmeistari í leiknum. Já, og auðvitað er 2018 Ísland í leiknum."

„Við settum þetta í loftið í fyrradag og vorum bara að setja á facebook síðurnar okkar. Það er strax búið spila leikinn hátt í 3000 sinnum enda hrikalega skemmtilegur.”

Nú er bara að skella sér á wintheworldcup.com og spila!
Slapp
banner
banner