Fotbolti.net
11.07.13 - 15:22
Magnús Már Einarsson

Ari Freyr til OB (Staðfest)

Ari Freyr til OB (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Freyr Skúlason hefur skrifað undir þriggja ára samning við danska félagið OB.

Ari Freyr mun ganga formlega til liðs við OB um áramótin þegar samningur hans við GIF Sundsvall rennur út en danska félagið vonast þó til að fá hann fyrr.
,,Við höfum fylgst lengi með Ara Skúlasyni og það er jákvæt að við höfum náð samkomulagi,\" sagði Jesper Hansen yfirmaður íþróttamála hjá Jesper Hansen.

,,Ef það er möguleiki þá viljum við fá Ara strax til Odense en það veltur á ýmsu.\"

Hinn 26 ára gamli Ari reyndi að fara frá Sundsvall eftir að liðið féll úr sænsku úrvalsdeildinni síðastliðið haust en án árangurs.

OB endaði í tíunda sæti í dönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili, fjórum stigum frá falli.

Heimild: Heimasíða OB

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.