Fotbolti.net
11.07.13 - 20:00
Daníel Freyr Jónsson

Victor Wanyama til Southampton (Staðfest)

Victor Wanyama.

Victor Wanyama.

Canon

Mynd: Getty Images

Miðjumaðurinn Victor Wanyama er genginn í raðir Southampton frá Skotlandsmeisturum Celtic.

Southampton greiðir metfé fyrir leikmanninn, 12,5 milljónir punda, og er hann dýrasti leikmaðurinn í sögu félagsins.
Wanyama er 22 ára gamall landsliðmaður Kenýu og hefur hann verið orðaður við mörg stórlið og þá helst Englandsmeistara Manchester Untied.

Hjá Southampton skrifaði hann undir fjögurra ára samning og er ljóst að hann mun styrkja miðjuna hjá suðurstrandarliðinu til muna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.