Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 11. júlí 2021 08:00
Victor Pálsson
Hakimi stefnir á að leika með Real Madrid
Mynd: EPA
Það er markmið bakvarðarins Achraf Hakimi að spila fyrir lið Real Madrid einn daginn að sögn umboðsmanns leikmannsins.

Hakimi er fæddur árið 1998 en hann samdi nýlega við Paris Saint-Germain eftir dvöl hjá Inter Milan.

Hakimi er uppalinn hjá Real en hann spilaði nokkra aðalliðsleiki fyrir félagið frá 2017 til 2019.

Alejandro Camano, umboðsmaður Hakimi, segir að það sé vilji leikmannsins að snúa aftur til Real í framtíðinni.

„Við höldum í vonina og drauminn um að Achraf snúi aftur til Real Madrid," sagði Camano.

„Hann fæddist í Madríd, var alinn upp í Madríd og lokamarkmið hans er að spila fyrir félagið einn daginn."
Athugasemdir
banner
banner