Fotbolti.net
11.08.21 - 19:52
Sverrir Örn Einarsson

Eysteinn: Ef ég átti einhvern þátt í þessum sigri vill ég tileinka honum þann part

Auglýsing
Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Keflavíkur

Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Keflavíkur

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
<i>„Ég var með einhverja tilfinningu alveg frá fyrstu mínútu að við myndum taka þetta í dag þrátt fyrir að við séum að spila hérna á móti einu besta liði landsins.“</i>
Sagði Eysteinn Húni Hauksson þjálfari Keflavíkur um sín fyrstu viðbrögð eftir 3-1 sigur hans manna á KA í 16 liða úrslitum Mjólkubikarsins fyrr í kvöld.
Keflavík mæti af gríðarlegum krafti inn í leikinn gegn KA og var mikill munur á því hvernig liðið nálgaðist leikinn samanborið við fyrri hálfleik í deildarleik liðsins á dögnum gegn Fylki. Um þetta sagði Eysteinn.

„Það var ánægjulegt að sjá það. Við gáfum nokkuð mörgum mönnum tækifæri sem hafa verið að spila minna og þeir nýttu það eins og á að gera og komu af fullum krafti. “

Sigurinn fleytir Keflvíkingum í 8 liða úrslit Mjólkurbikarsins þetta árið en dregið verður að loknum leik Víkinga og KR annað kvöld. Fréttaritara lék forvitni á að vita hvort Eysteinn væri með einhver skilboð til Keflvíkinga en stuðningurinn á vellinum í kvöld var meiri en oft áður á undanförnum árum í Keflavík.

„Það var gaman að sjá að það voru ungir guttar í dag sem að tóku sig saman og reyndu að búa til stemmingu hérna sem hefur ekki verið einkenni hérna á vellinum. Ég vill hrósa þeim sérstaklega og vona að þeir flykki sér á bakvið okkur sama hvaða lið við fáum.“

Sagði Eysteinn sem endaði viðtalið á að senda föður sínum afmæliskveðju og tökum við hér á Fótbolti.net að sjálfsögðu undir hana og óskum Hauki föður Eysteins til hamingju með daginn.

„Merkasti maðurinn í mínu lífi karl faðir minn hann er 75 ára í dag og ég vill tileinka honum ef ég átti einhvern þátt í þessum sigri vill ég tileinka honum þann part. .“

Allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.