Hinn öflugi Bamba Dieng er á leið í enska boltann þvert á hans eigin óskir um að fá að vera áfram hjá Marseille í Frakklandi.
Dieng er 22 ára framherji sem skoraði sjö mörk og gaf þrjár stoðsendingar í 25 deildarleikjum með Marseille á síðustu leiktíð.
Nottingham Forest, Newcastle og Leeds United hafa öll áhuga á framherjanum sem kostar aðeins 15 milljónir evra, eða um 12,5 milljónir punda, og þykir ljóst að hann muni enda hjá einhverju af þessum félögum.
Marseille hefur styrkt leikmannahópinn sinn til muna í sumar og er ekki lengur pláss fyrir Dieng í framlínunni þar sem Arkadiusz Milik, Luis Suárez og Cédric Bakambu eru allir fyrir ofan hann í goggunarröðinni sem fremsti sóknarmaður.
Þá eru Cengiz Ünder, Dimitri Payet og Alexis Sanchez á undan honum í goggunarröðinni úti á kanti.
Dieng er landsliðsmaður Senegal og vann Afríkukeppnina í vetur. Hann skoraði tvö mörk í fimm leikjum á mótinu og reyndist mikilvægur til að kveikja á sóknarleik Senegala eftir að þeir höfðu aðeins skorað eitt mark í riðlakeppninni.