Fotbolti.net
11.08.23 - 20:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Algjörlega galið að hún sé enn inn á vellinum"

Agla María Albertsdóttir.

Agla María Albertsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Núna var seinni hálfleikurinn í úrslitaleik Mjólkurbikarsins að hefjast; Víkingur er 2-1 yfir gegn Breiðabliki. Óvænt staða, svo sannarlega.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 1 Breiðablik
Það var athyglisvert atvik í fyrri hálfleiknum þar sem Agla María Albertsdóttir, fyrirliði Breiðabliks, sparkaði laust aftan í Emmu Steinsen Jónsdóttur eftir að hún braut á henni.

Sérfræðingar RÚV, Harpa Þorsteinsdóttir og Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, voru hissa á því að dómarinn, Jóhann Ingi Jónsson, hefði ekki spjaldað Öglu Maríu í þessu tilviki og jafnvel gefið henni rautt spjald.

„Mér finnst það alveg merkilegt að hvorki dómarinn né fjórði dómarinn hafi stigið þarna inn í," sagði Harpa. „Þau eiginlega brosa af atvikinu og halda áfram. Þetta er mjög áhugaverð dómgæsla."

„Þetta er bara galið. Fjórði dómarinn á líka að sjá þetta. Hún sparkar í bakið á Emmu Steinsen og það er algjörlega galið að hún sé enn inn á vellinum," sagði Adda.

„Við sáum á heimsmeistaramótinu svipað atvik með Lauren James og hún er í tveggja leikja banni," sagði Helga Margrét Höskuldsdóttir, sem er að stýra umræðunum.

Seinni hálfleikurinn var að hefjast á Laugardalsvelli en hægt er að fylgjast með í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.