11.08.26 - 23:24
Brynjar Ingi Erluson
Haaland kallar nýjan liðsfélaga sinn „dýfara“

Anderson og Haaland í baráttunni á HM

Mynd: EPA

Anderson og Haaland í baráttunni á HM

Mynd: EPA
Norski sóknarmaðurinn Erling Braut Haaland sló á létta strengi er hann svaraði ósk stuðningsmanns á Instagram.
Manchester City keypti Anderson frá Nottingham Forest fyrir 116 milljónir punda í síðasta mánuði.
Anderson og Haaland hafa nokkrum sinnum mæst í ensku úrvalsdeildinni en þeir tókust einnig á á heimsmeistaramótinu í sumar.
England og Noregur mættust þar í átta liða úrslitum og var mark Torbjorn Heggem dæmt af eftir hornspyrnu.
Anderson féll í grasið eftir viðskipti við Haaland og eftir skoðun í VAR ákvað dómarinn að taka markið af. Þetta gerðist í stöðunni 1-1, en Englendingar höfðu á endanum sigur í framlengingu.
Haaland sagði eftir leikinn að honum hefði ekki fundist um brot að ræða. Hann fær nú væntanlega tækifæri til að kryfja málið til mergjar með Englendingnum á æfingasvæði City.
Norðmaðurinn birti mynd af sér í Manchester-sólinni á Instagram. Einn notandi bað hann að skila kveðju til Anderson og Haaland var fljótur að svara.
„Ertu að tala um dýfarann?“ skrifaði Haaland en City Xtra vakti athygli á svarinu á X.

Erling Haaland reunites with Elliot Anderson at #ManCity this week. ???? pic.twitter.com/pFEKuXe7fM
— City Xtra (@City_Xtra) August 11, 2026