Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 11. september 2020 23:00
Aksentije Milisic
Florenzi til PSG á láni (Staðfest)
Mynd: Getty Images
PSG hefur fengið Alessandro Florenzi til liðsins á láni frá Roma í eitt ár. Í kjölfarið getur félagið keypt leikmanninn þegar lánssamningi lýkur.

Hinn 29 ára gamli Florenzi kemur til PSG fyrir eina milljón punda en liðið getur keypt hann á um 9 milljónir punda eftir tímabilið. Florenzi verður númer 24 hjá PSG.

Florenzi er fenginn til þess að fylla í skarð Thomas Meunier en hann gekk í raðir Dortmund í sumar á frjálsri sölu.

„Ég er stoltur og mjög ánægður með að ég sé orðinn leikmaður PSG. Þetta er einn af stærstu klúbbum í heimi og það sást á frammistöðu þeirra í Meistaradeildinni," sagði Florenzi.



Athugasemdir
banner
banner
banner