Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 11. september 2020 18:37
Aksentije Milisic
Holland: Elías sjóðheitur - Skorað sjö mörk í þremur leikjum
Mynd: Getty Images
Elías Már Ómarsson heldur áfram að spila mjög vel fyrir Excelsior í hollensku B-deildinni. Hann var í byrjunarliðinu í dag þegar liðið heimsótti FC Dordrecht.

Kevin Vermeulen kom heimamönnum í forystu á 10. mínútu en undir lok fyrri hálfleiks var komið að Elías. Hann skoraði þá tvö mörk á tveimur mínútum og sá til þess að Excelsior var yfir í hálfleik.

Það var svo á 89. mínútu sem Thomas Kotte gulltryggði sigur gestanna og þrjú stig staðreynd. Elías hefur byrjað tímabilið að krafti og er hann nú kominn með sjö mörk í þremur leikjum.

Excelsior er í fjórða sæti deildarinnar eftir þrjá leiki en flest önnur lið í deildinni hafa spilað leik færri, sum eiga tvo leiki til góða.
Athugasemdir
banner
banner