Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. september 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
U21 lið Man Utd burstaði Salford sem er í eigu 92' árgangsins
Hannibal Mejbri skoraði fyrsta mark United. Hann er mjög efnilegur.
Hannibal Mejbri skoraði fyrsta mark United. Hann er mjög efnilegur.
Mynd: Twitter
U21 lið Manchester United valtaði yfir aðallið Salford City þegar liðin áttust við í EFL bikarnum á miðvikudagskvöld.

Í þeirri keppni taka þátt lið úr C- og D-deild Englands ásamt nokkrum U21 liðum félaga úr úrvalsdeildinni og Championship.

Salford er í eigu leikmanna úr frægum 1992 árgangi Manchester United, Gary Neville, David Beckham, Paul Scholes, Ryan Giggs, Phil Neville og Nicky Butt.

Salford er í D-deild en þeir réðu ekki við unga leikmenn Manchester United. Lokatölur voru 6-0. Frakkinn Hannibal Mejbri skoraði fyrsta markið og Spánverjinn Arnau Puigmal bætti við öðru marki fyrir leikhlé. Mark Helm gerði þriðja markið snemma í síðari hálfleik og á fimm mínútna kafla í seinni hálfleiknum skoraði United þrjú mörk. Charlie McCann, Helm og Anthony Elanga.

Rochdale og Morecambe eru einnig í þessum riðli.


Athugasemdir
banner
banner