„Við vorum búnir að banka á dyrnar nokkrum sinnum rétt á undan þannig það var mjög sætt að sjá hann loksins inni og mjög dýrmætt. Áttum þetta fyllilega skilið, unnum vel í dag og gerðum bara hlutina okkar vel og gott líka að gefa aðeins til baka til landans, við þurfum á öllum stuðning á að halda. Við erum kannski ekki búnir að delivera okkar þannig gott að taka þrjú stig í dag hérna heima." sagði Hjörtur Hermansson eftir 1-0 sigur á Bosníu á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 1 - 0 Bosnía og Hersegóvína
„Þeir fengu kannski aðeins að stjórna leiknum en á meðan þeir eru ekki að skapa neitt þá vitum við það að við þurfum ekki nema eitt tækifæri og á meðan við höldum núllinu þá er þetta bara einföld stærðfræði að við þurfum bara að skora eitt mark og grípa tækifærin þegar þau gefast og við gerðum það í dag."
Alfreð Finnbogason og Jón Dagur Þorsteinsson komu inn á þegar stutt var eftir af leiknum og komu þeir að sigurmarki okkar manna á 91.mínútu þegar Alfreð Finnbogason skoraði á 91 mínútu.
„Það er gott að fá ferskar lappir inn með svona mikil gæði þannig og bara hrikalega sætt að klára þetta."
Hjörtur Hermannsson spilaði í miðverðinum með Guðlaugi Victori Pálssyni og skilaði hann frábæru dagsverki.
„Það var bara frábært það er þvílíkur heiður að fá að klæðast Íslensku treyjunni og þetta er bara skemmtilegasta sem maður gerir þannig vonandi gerir maður meira af því í framtíðinni."























