fös 11. október 2019 13:18
Elvar Geir Magnússon
Jamie Vardy í uppnámi vegna ásakana Coleen Rooney
Jamie Vardy og Rebekah.
Jamie Vardy og Rebekah.
Mynd: Getty Images
Rebekah Vardy segir að eingmaður sinn Jamie Vardy sé í uppnámi vegna þeirra deilna sem hún eigi við Coleen Rooney.

Coleen, eiginkona Wayne Rooney, sagði í vikunni frá því að hún hefði með klækjabrögðum komist að því að Rebekah væri að leka upplýsingum af lokaðri Instagram síðu sinni til slúðurblaða.

Sjá einnig:
Coleen Rooney ásakar Rebekah Vardy um að leka sögum til Sun

Rebekah neitar sök og segist ákveðin í að hreinsa nafn sitt af þessum ásökunum en hún hefur fengið hótanir á samfélagsmiðlum og lögreglan vaktað heimili Vardy hjónanna.

Rebekah er gengin sjö mánuði á lið með sitt fimmta barn en hún segir að eiginmaður sinn hafi áhyggjur út af ásökununum.

„Hann er í uppnámi vegna þessara ásakana. Ég hringdi í Coleen eftir að hún sendi frá sér þessa Twitter færslu, það var ekki auðvelt símtal. Ég sagði henni að hún hefði niðurlægt mig opinberlega og að skyndilega hötuðu mig allir," segir Rebekah.

„Ég hélt að hún væri vinkona mín en hún tortímdi mér algjörlega."

Rebekah var spurð að því hvort þær hefðu rifist í símanum?

„Það er eins og að rífast við dúfu. Þú getur sagt að þú hefur rétt fyrir þér en það skilar bara engu," segir Rebkah.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner