Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. október 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Robbie Fowler tekur við SC East Bengal (Staðfest)
Robbie Fowler.
Robbie Fowler.
Mynd: Getty Images
Robbie Fowler, fyrrum sóknarmaður Liverpool, hefur verið ráðinn sem þjálfari SC East Bengal í Indlandi.

Fowler skifaði undir tveggja ára samning við félagið.

Hinn 45 ára gamli Fowler þjálfaði síðast Brisbane Rovers í Ástralíu og stýrði liðinu í fjórða sæti áströlsku deildarinnar áður en deildin þar var stöðvuð vegna kórónuveirufaraldursins. Hann yfirgaf félagið í júní.

Fowler hefur líka þjálfað í Taílandi og í akademíu Liverpool eftir að skórnir fóru upp á hillu árið 2012.

SC East Bengal, sem er 100 ára gamalt félag, eru nýliðar í úrvalsdeildinni í Indlandi.
Athugasemdir
banner
banner