Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari hefur opinberað byrjunarliðið sem mætir Liechtenstein klukkan 18:45.
Gerðar eru fjórar breytingar frá 1-1 leiknum gegn Armeníu. Ari Freyr og Birkir Már eru í banni og Guðlaugur Victor ákvað að draga sig úr hópnum til að einbeita sér að félagsliði sínu. Hjörtur Hermannsson fer á bekkinn.
Inn fyrir þá koma Daníel Leó Grétarsson, Guðmundur Þórarinsson, Alfons Sampsted og Stefán Teitur Þórðarson. Stefán er að spila sinn fyrsta leik í undankeppninni.
Smelltu hér til að fylgjast með textalýsingu frá leiknum

Varnarmaðurinn Brynjar Ingi Bjarnason var tæpur fyrir leikinn en hann vann kapphlaupið við tímann og heldur byrjunarliðssætinu.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir