Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 11. október 2021 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Undankeppni HM: Messi skoraði 80. mark sitt í öruggum sigri
Lautaro Martinez og Lionel Messi afgreiddu Úrúgvæ
Lautaro Martinez og Lionel Messi afgreiddu Úrúgvæ
Mynd: EPA
Argentína 3 - 0 Úrúgvæ
1-0 Lionel Messi ('38 )
2-0 Rodrigo de Paul ('44 )
3-0 Lautaro Martinez ('62 )

Lionel Messi gerði 80. mark sitt fyrir Argentínu í 3-0 sigri á Úrúgvæ í undankeppni HM í nótt.

Mark hans kom á 38. mínútu. Það var heldur furðulegt en hann ætlaði að vippa boltanum inn í teiginn á Giovani Lo Celso. Sá hitti þó ekki boltann og skoppaði hann framhjá Fernando Muslera og í netið.

Rodrigo de Paul bætti við öðru undir lok fyrri hálfleiks. Lautaro Martinez ætlaði að láta vaða á markið en hitti boltann illa, sem datt svo fyrir de Paul í teignum og kláraði hann af yfirvegun.

Lautaro gerði út um leikinn á 62. mínútu. De Paul átti fyrirgjöf sem Lo Celso potaði á fjærstöngina á Lautaro og þaðan í netið.

Lokatölur 3-0 og Argentína í öðru sæti riðilsins með 22 stig eftir tíu leiki. Úrúgvæ er á meðan í 4. sæti með 16 stig.
Athugasemdir
banner
banner