Fotbolti.net
11.10.23 - 20:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Spái því að það megi búast við tilkynningu á næstu dögum"

Ólafur Pétursson og Gunnleifur á hliðarlínunni þegar Breiðablik sigraði Val í lokaumferðinni.

Ólafur Pétursson og Gunnleifur á hliðarlínunni þegar Breiðablik sigraði Val í lokaumferðinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Ekki er ljóst hver mun þjálfa kvennalið Breiðabliks á næsta tímabili. Flosi Eiríksson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, var spurður út í þjálfaramálin í dag.
„Þetta gengur ágætlega, ég spái því að það megi búast við tilkynningu á næstu dögum. Við erum að vanda okkur," sagði Flosi.

„Við erum afar ánægð með að þær skyldu ná Evrópusæti, þurfum að byggja ofan á þeim árangri og ætlum að gefa okkur þann tíma sem þarf."

Kemur til greina að einhver af þeim sem endaði tímabilið sem einn af þjálfurum liðsins verði áfram þjálfari liðsins?

„Ég ætla ekki að tjá mig um hver gæti tekið við liðinu," sagði formaðurinn.

Þau Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, Kjartan Stefánsson, Ólafur Pétursson og Ana Victoria Cate voru saman með liðið í lok tímabilsins. Breiðablik endaði í 2. sæti deildarinnar og fer í forkeppni Meistaradeildarinnar á næsta tímabili.

Gulli Gull stoltur eftir leik: Ég er búinn að skila mínu starfi hérna

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.