Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 12. janúar 2020 11:19
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Man Utd búið að bjóða í 16 ára leikmann Birmingham?
Manchester United gæti verið að fá ungan leikmann frá Birmingham.
Manchester United gæti verið að fá ungan leikmann frá Birmingham.
Mynd: Getty Images
Manchester United er sagt hafa lagt fram tilboð í 16 ára gamlan leikmann Birmingham sem er eftirsóttur af fleiri stórum félögum í Evrópu.

Það er Daily Mirror sem greinir frá þessu. Jude Bellingham heitir leikmaðurinn ungi sem er uppalinn hjá Birmingham.

Rauðu djöflarnir eru sagðir vera í bílstjórasætinu í baráttunni um þennan unga og efnilega leikmann.

Tilboð Manchester United er talið hafa hljóðað upp á 12,5 milljónir punda.

Bellingham hefur spilað nokkuð reglulega í Championship deildinni í vetur, hann er yngsti markaskorari í sögu Birmingham.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner