Bafoda Diakite, leikmaður Toulouse í frönsku B-deildinni, skoraði laglegt mark í 2-2 jafnteflinu gegn Caen í gær.
Toulouse var tveimur mörkum þegar lítið var eftir af fyrri hálfleik en þá ákvað Diakite að taka til sinna ráða.
Hann lét vaða vinstra megin við teiginn og átti markvörður Caen ekki möguleika á að verja.
Skot var afar fast og flökti boltinn þannig markvörðurinn misreiknaði knöttinn. Þetta hjálpaði Toulouse að koma til baka og tókst liðinu að ná í jöfnunarmarki undir lokin.
Sjáðu markið hjá Diakite
Athugasemdir