Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 12. janúar 2023 18:40
Brynjar Ingi Erluson
Aron Einar á toppnum í Katar
Aron Einar Gunnarsson
Aron Einar Gunnarsson
Mynd: Getty Images
Al Arabi er á toppnum í stjörnudeild Katar eftir 2-1 sigur á Al Wakra í dag en liðið hefur ekki tapað deildarleik síðan í ágúst á síðasta ári.

Íslenski landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson er á mála hjá Al Arabi en hann er fastamaður í vörn liðsins.

Hann spilaði allan leikinn í dag er liðið vann góðan 2-1 sigur á Al Wakra og er liðið nú með tveggja stiga forystu á toppnum eftir níu umferðir.

Síðasti tapleikur Al Arabi kom gegn Al Duhail í lok ágúst en síðan þá hefur liðið unnið þrjá og gert eitt jafntefli.
Athugasemdir
banner
banner