Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 12. febrúar 2019 18:00
Arnar Helgi Magnússon
Zlatan spáir í spilin fyrir einvígi Man Utd og PSG
Mynd: Getty Images
Zlatan Ibrahimovic, fyrrum leikmaður Manchester og PSG, er búinn að spá í spilin fyrir einvígi Man Utd og PSG í Meistaradeildinni.

Fyrri leikur liðanna er spilaður í kvöld og hefst hann klukkan 20:00 á Old Trafford í Manchester.

„Ef þú hefðir spurt mig fyrir einhverju síðan þá hefði augljósa svarið verið PSG. Eins og staðan er í dag er erfitt að spá í þennan leik. Ég held samt að PSG sé ennþá sigurstranglegra," sagði Zlatan aðspurður hvaða lið færi áfram úr einvíginu.

Eins og fyrr segir hefur Zlatan spilað með báðum liðunum og að hans sögn er hann sigurvegarinn, sama hvernig fer.

„Sama hvernig fer, þá er ég sigurvegarinn. Ég mun styðja það lið sem fer áfram þannig að ég verð hress, sama hvernig þetta fer."
Athugasemdir
banner
banner
banner