Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mið 12. febrúar 2020 23:14
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ighalo bannað að mæta á æfingasvæði United
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur sagt við Odion Ighalo að halda sig fjarri frá Carrington æfingasvæðinu.

Félagið gerir það vegna hræðslu við útbreiðslu kórónaveirunnar. ESPN og Times greina frá þessu í kvöld. Framherjinn sem er á láni frá Shanghai Shenhua út þessa leiktíð hefur æft í Tækwondó sal í grennd við Etihad leikvanginn frá því hann kom frá Sjanghæ.

Frá komu Ighalo á gluggadeginum, 31. janúar, á Ighalo að halda sig í tvær vikur frá æfingasvæðinu. Tveir dagar eru í að þessar tvær vikur klárast.

Hópur Manchester United mun snúa til baka frá Marbella á Spáni á föstudag en liðið mætir Chelsea næstkomandi mánudag. Ighalo mátti ekki ferðast með til Spánar.

Læknateymi United segja líkurnar á því að Ighalo sé með vírusinn stjarnfræðilega litlar en félagið vildi ekki taka neina áhættu þar sem fullt af starfsfólki vinnur við Carrington.

Sjá einnig:
Ighalo fer ekki til Spánar - Harðar reglur vegna kóróna-veirunnar
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner