Aron Jóhansson hefur gengið til liðs við Lech Poznan í Póllandi en þetta var staðfest nú í kvöld.
Aron skrifaði undir eins árs samning við Lech Poznan með möguleika á eins og hálfs árs framlengingu.
Aron var án félags en á síðasta tímabili var hann hjá Hammarby þar sem hann skoraði tólf mörk í 22 leikjum í sænsku úrvalsdeildinni.
Aron hefur leikið 19 A-landsleiki fyrir Bandaríkin en hann er fæddur þar. Þessi þrítugi leikmaður setti inn mynd á Twitter í kvöld þar sem segist vera mjög ánægður með að hafa skrifað undir hjá Lech Poznan.
Lech Poznan er í tíunda sæti í pólsku úrvalsdeildinni.
Exciting times! Very happy to sign for @LechPoznan pic.twitter.com/CY6fj04osc
— Aron Jóhannsson (@aronjo20) February 12, 2021
Athugasemdir