Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 12. febrúar 2021 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fram fær til sín þrjá leikmenn (Staðfest)
Lára, Halla og Ásta.
Lára, Halla og Ásta.
Mynd: Fram
Kvennalið Fram gekk í vikunni frá samningum við þrjá leikmenn sem ganga til liðs við meistaraflokk félagsins.

Lára Ósk Albertsdóttir er 19 ára miðjumaður sem kemur til liðsins frá HK. Hún er miðjumaður og gerir tveggja ára samning við Fram.

Ásta Hind Ómarsdóttir er tvítugur bakvörður sem kemur til liðsins frá HK. Ásta getur leyst báðar bakvarðastöðurnar. Hún gerir tveggja ára samning við Fram.

Halla Þórdís Svansdóttir er 18 ára kantmaður sem kemur til Fram á láni frá Aftureldingu út tímabilið. Halla spilaði einnig með Fram á síðasta tímabili og var valinn efnilegasti leikmaður liðsins.

Fram leikur í 2. deild kvenna á komandi tímabili.


Halla Þórdís í leik með Fram í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner
banner