Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því á Facebook að hafa fengið tvö útköll í gærkvöldi vegna hávaða og óhljóða sem í báðum tilfellum reyndust vera svekktir stuðningsmenn Liverpool.
Liverpool tapaði gegn PSG eftir vítakeppni í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær
Liverpool tapaði gegn PSG eftir vítakeppni í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær
„Reglulega berast lögreglu kvartanir vegna hávaða og gærkvöldið var engin undantekning í þeim efnum. Að þessu sinni var það vegna Liverpool-aðdáenda sem fóru á límingunum þegar liðið þeirra tapaði í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik í Meistaradeildinni. Að tapa með þeim hætti er sárt og því fylgja stundum öskur og læti enda vonbrigðin gríðarleg hjá eldheitum stuðningsmönnum," segir í færslu lögreglunnar.
„Engum varð þó meint af í þeim tveimur málum sem sinnt var vegna þessa í gærkvöld, en þá höfðu áhyggjufullir nágrannar hringt í lögregluna eftir að óhljóð höfðu borist á milli íbúða. Til að gæta allrar sanngirni skal tekið fram að útköll sem þessi eru ekki einvörðungu bundin við stuðningsmenn Liverpool, nei síður en svo."
Athugasemdir