Fotbolti.net
12.04.21 - 14:00
Magnús Már Einarsson

Sjáðu markið: Skoraði með skalla langt fyrir utan vítateig

Roy Carroll kom engum vörnum við.

Roy Carroll kom engum vörnum við.

Canon

Mynd: Getty Images

Rory Donnelly, leikmaður Glentoran, skoraði ótrúlegt mark í úrvalsdeildinni í Norður-Írlandi um helgina.

Roy Carroll, markvörður Dungannon Swifts, kom langt út úr marki sínu til að skalla boltann í burtu eftir stungusendingu.

Donnelly þakkaði fyrir sig með því að skalla í autt markið af 40 yarda, 36 metra, færi!

Carroll markvörður stóð hissa eftir en þessi 43 ára gamli reynsubolti spilaði á sínum tíma með Manchester United.

Hér að neðan má sjá þetta magnaða mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.