Fotbolti.net
12.04.23 - 20:34
Brynjar Ingi Erluson

Afturelding fær miðjumann á láni frá Randers (Staðfest)

Afturelding fær miðjumann á láni frá Randers (Staðfest)
Canon

Mynd: Afturelding

Lengjudeildin
Afturelding heldur áfram að styrkja sig fyrir átökin í Lengjudeildinni en danski leikmaðurinn Oliver Bjerrum Jensen er kominn á láni frá danska úrvalsdeildarfélaginu Randers.
Jensen er tvítugur miðjumaður sem er uppalinn hjá Midtjylland en hann gekk í raðir Randers árið 2018. Hann á tvo leiki með Randers í dönsku úrvalsdeildinni.

Hann spilaði á móti Silkeborg fyrr á þessu tímabili. Þá kom hann við sögu gegn Horsens árið 2020 og svo Viby í bikarnum árið áður.

Þessi öflugi leikmaður hefur æft með Aftureldingu á Campo Amor á Spáni og er nú búinn að skrifa undir lánssamning sem gildir út þetta tímabil.

Jensen á að baki leiki fyrir U17. U18 og U19 ára landslið Danmerkur.

„Félagið hefur hrifið mig mjög mikið hingað til og ég er mjög spenntur að fara til Aftureldingar og spila með liðinu. Ég hlakka til að spila fótbolta á nýjan leik, ég hef saknað þess undanfarið árið,“ sagði Oliver við undirskrift.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.