Fotbolti.net
12.04.23 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

„Síðasti naglinn í kistuna á ótrúlega lélegu tímabili Liverpool“

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Canon

Mynd: EPA

Það urðu margir stuðningsmenn Liverpool svekktir í gær þegar fréttir bárust af því að félagið hefði dregið sig út úr baráttunni um Jude Bellingham, miðjumann Borussia Dortmund.

Fótboltafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir að Liverpool telji of kostnaðarsamt að fá Bellingham, hann er með 130 milljóna punda verðmiða á sér og háar launakröfur.

Hann segir að Real Madrid og Manchester City séu enn í baráttunni um Bellingham en staða Manchester United velti á því hvernig söluferli félagsins endar.
Jordan Chamberlain skrifar fyrir Empire of the Kop, stuðningsmannasíðu Liverpool.

„Þessar fréttir eru síðasti naglinn í kistunni á ótrúlega lélegu tímabili Liverpool. Jude Bellingham verður ekki keyptur því félagið gerir sér grein fyrir því að það þarf að eyða þessum peningum í allsherjar enduruppbyggingu í staðinn," segir Chamberlain.

„Vandamálið er að stór hluti af ástæðunni fyrir því að Liverpool þarfnast endurbyggingar er sú að félagið hefur staðið í stað á félagaskiptamarkaðnum síðustu ár í þeirri von um að fá stórstjörnu Borussia Dortmund á endanum."

„Það þarf að endurnýja miðjuna algjörlega í ljósi þess hvernig Jordan Henderson og Fabinho hafa verið að spila á þessu tímabili. Bellingham átti að vera síðasta púslið en Liverpool þarf nýtt miðsvæði frá grunni."

„Það yrði frábær byrjun að fá Declan Rice frá West Ham, hann getur fyllt skarð Henderson til frambúðar. Moises Caciedo eða Alexis Mac Allister hjá Brighton myndu styrkja okkur. Liverpool þarf kraftmikla bardagamenn sem geta hlaupið og gefið bakvörðunum tækifæri á að sækja. Manuel Ugarte hjá Sporting Lisbon og Manu Kone hjá Borussia Mönchengladbach eru áhugaverðir valmöguleikar."

„Við þurfum að minnsta kosti þrjá miðjumann til að bæta upp fyrir vonbrigðin yfir því að fá ekki Bellingham. Nú er bara að vona að hann fari ekki til Manchester United eða Manchester City."
Jude Bellingham í lauginni.

Jude Bellingham í lauginni.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.