Gústi Gylfa: Langt í frá að vera lottó
Auglýsing

Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis.

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
„Við erum með fullt hús stiga og það er góð tilfinning. Það er alltaf gaman að vinna,\" segir Ágúst Gylfason, þjálfari Fjölnis, en Tómas Meyer kíkti á æfingu í Grafarvoginum í vikunni.
Grafarvogsliðið er búið að vinna fyrstu tvo leiki sína í Pepsi-deildinni en fyrir mót vissu spekingar ekki hvar þeir áttu að setja Fjölni.

„Það er bara ágætt að vera vanmetinn en við höfum sýnt það þessa fyrstu tvo leiki að við erum tilbúnir.\"
Fjölnir hefur fengið erlenda leikmenn til sín sem vakið hafa mikla athygli. Ágúst segir að félagið hafi ekki tekið þátt í neinu útlendingalottói, vandað hafi verið valið.
„Þeir aðilar sem hafa tekið útlendinga eru margir hverjir ekki nægilega vel undirbúnir. Þetta er langt frá því að vera eitthvað lottó hjá okkur. En við eigum eftir að lenda í einhverju mótlæti og þá kemur í ljós úr hverju þessir strákar eru gerðir. Við höfum verið í meðbyr og þeir eru góðir í honum, Við munum klárlega tapa leikjum í þessu. Það eru bara tveir leikir búnir,\"
Viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan en Fjölnismenn mæta ÍA í kvöld.
Í kvöld:
18:00 ÍBV-Víkingur Ó. (Hásteinsvöllur)
19:15 Valur-Fylkir (Valsvöllur)
19:15 ÍA-Fjölnir (Norðurálsvöllurinn)
19:15 Stjarnan-Þróttur R. (Samsung völlurinn)
20:00 KR-FH (Alvogenvöllurinn)
Föstudagur 13. maí
20:00 Breiðablik-Víkingur R. (Kópavogsvöllur)