Vesna Elísa Smiljkovic hefur gengið til liðs við Fylki og mun leika með Árbæjarliðinu í Pepsi Max-deild kvenna í sumar.
Vesna, sem síðast spilaði með Val, hefur spilað á Íslandi frá árinu 2005, en auk Vals hefur hún spilað hér á landi með Keflavík, Þór/KA og ÍBV.
Hún hefur spilað alls 236 leiki í deild og bikar og skorað í þeim leikjum alls 94 mörk.
Vesna er fædd 1983 og kom aðeins við sögu í einum leik með Val í Pepsi Max-deild kvenna í fyrra og lék ekkert 2018 vegna barnsburðar.
Fylkir hafnaði í sjötta sæti Pepsi Max-deildar kvenna í fyrra.

Vesna Elísa í Fylki
Posted by Íþróttafélagið Fylkir on Þriðjudagur, 12. maí 2020
Vesna Elísa Smiljkovic hefur gengið til liðs við félagið og mun leika með Fylki í Pepsi Max deild...
Athugasemdir