Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 12. maí 2021 08:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ragnar Már verður hjá Kára í sumar
Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla
Ragnar Már Lárusson mun halda áfram að spila með Kára í sumar eftir að hafa verið hjá félaginu undanfarin fimm ár.

Ragnar Már er flinkur kantmaður fæddur 1997 og uppalinn hjá ÍA og Brighton.

Hann hefur reynst Kára afar drjúgur í gegnum tíðina og á þrjá keppnisleiki að baki fyrir meistaraflokk Aftureldingar. Í þeim hefur Ragnar skorað þrjú mörk.

Kári byrjaði nýtt tímabil í 2. deild á tapleik á heimavelli gegn KF.

Ragnar Már gæti verið gríðarlega mikilvægur fyrir Kára í sumar.
Athugasemdir
banner
banner