Fotbolti.net
12.06.16 - 21:30
Magnús Már Einarsson

Þorgrímur Þráins í nuddi: Ekki sýna á mér tærnar!

Auglýsing
Þorgrímur Þráins í nuddi: Ekki sýna á mér tærnar!
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Hannes Þór Halldórsson og Hörður Björgvin Magnússon sýndu hótel landsliðsins í innslagi sem birtist í gær. Þar sýndu þeir aðstöðu landsliðsins í Annecy.

Á rölti um hótelið rákust þeir á Þorgrím Þráinsson, starfsmann landsliðsins.

Þorgrímur var í spa aðstöðu hótelsins þar sem hann lét fara vel um sér í fótanuddtæki.
„Þetta er rosalega gott iljanudd. Þetta er líka gott fyrir kálfana og ökklana. Menn fara massíft í þetta,\" sagði Þorgrímur sem var þó ekki hrifinn af myndatökunni.

„Ekki sýna á mér tærnar, jesús kristur! Þetta eru gamlar fótboltatær,\" sagði Þorgrímur léttur.

Sjá einnig:
Komdu í hótelskoðun með Hannesi og Herði
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.