Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 12. júní 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Björgólfur Takefusa í SR (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markaskorarinn reyndi Björgólfur Takefusa hefur gengið til liðs við SR í 4. deildinni.

Björgólfur tók skóna af hillunni í fyrra eftir fjögurra ára hlé og skoraði fjögur mörk í átta leikjum með KV í 3. deildinni.

Hinn fertugi Björgólfur skoraði á sínum tíma 83 mörk í 182 leikjum í efstu deild með KR, Fylki, Fram, Víkingi R. og Þrótti R.

Hann mun nú spila með SR í sumar en hjá liðinu er einnig annar reyndur markaskorari, Hjörtur Júlíus Hjartarson.
Athugasemdir
banner
banner
banner