Arsenal á góða möguleika á að fá Rodrygo - Atletico leggur allt kapp á að fá Romero - West Ham hafnaði tilboði í Kudus
   lau 12. júní 2021 16:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eriksen féll til jarðar - Leikur stöðvaður
Mynd: EPA
Það er búið að gera hlé á leik Danmerkur og Finnlandi á Evrópumótinu.

Christian Eriksen, leikmaður Danmerkur, féll til jarðar undir lok fyrri hálfleiks. Sjúkrastarfsmenn á vellinum virðast vera að framkvæma hjartahnoð.

Leikmenn Danmerkur og stuðningsmenn eru með tárin í augunum. Allir á vellinum eru í sjokki og það verður að teljast ólíklegt að leikurinn haldi áfram.

Það er ekki mikið vitað á þessari stundu en þetta lítur mjög alvarlega út.

Fótbolti.net mun flytja frekari fréttir af þessu máli þegar þær berast.
Athugasemdir
banner