Fotbolti.net
12.06.25 - 21:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Finnst vanta óþokka í liðið - „Eins og þegar þú hrindir litla systkininu þínu og skorar úrslitamarkið"

Jóhann Kristinn.

Jóhann Kristinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Akkúrat núna er staðan þannig að við erum bogin og beygluð, og okkur líður illa. Ég vorkenni stelpunum alveg skelfilega mikið af því að við erum í síðustu tveimur leikjum, bæði á móti FH og Þrótti, sem eru tvö af þessum sterkustu liðum, að gera mikið en það vantar eitthvað drápseðli ef svo má segja til að klára stöðurnar sem við komum okkur í. Í og við teig andstæðinganna vantar okkur þennan óþokka í okkur," sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þórs/KA, við Fótbolta.net eftir leikinn gegn FH í kvöld.

Þór/KA tapaði sínum öðrum leik í röð, FH vann 1-3 sigur í Boganum. Í síðasta leik á undan tapaði Þór/KA 2-0 gegn Þrótti þar sem vantaði herslumuninn.
Jói um gula spjaldið: Greinilega mikið að gera hjá dómaranefndinni
TENGT EFNI

Jói um gula spjaldið: Greinilega mikið að gera hjá dómaranefndinni

Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 3 FH
En um óþokkann sem Jóa finnst vanta í liðið: „Þetta er svona eins og þegar það er úrslitamark úti í garði og þú hrindir litla systkininu þínu og þú skorar þetta mark. Okkur vantar þetta."

„Akkúrat núna er staðan þannig að við erum mjög þreytt lið. Á morgun er nýr dagur, sem við ætlum að nýta í að hvíla okkur. Svo á mánudag fáum við spræka Blika í heimsókn, við sjáum hvernig staðan verður eftir það."

„Við getum ekki gert neitt annað en að safna orku, við þurfum líka að létta til hjá okkur, finna þetta drápseðli, því stelpurnar eru að gera mjög mikið, erum að bæta okkur á mörgum sviðum en þetta verðum við að laga."

„Svo erum við að gefa alls konar fíflaleg mörk, það er erfitt að díla við það, gefum þrjú mörk í dag. Við vorum aðeins að skvetta þessu pínu (reyna ná inn jöfnunarmarki). Við eigum ekki að vera gefa þessi mörk úr föstum leikatriðum,"
sagði Jói sem var mjög ósáttur við fyrsta mark FH í leiknum sem kom eftir einfalda sendingu inn á teiginn úr aukaspyrnu.
Þór/KA er í 4. sæti í Bestu deildinni þegar tvær umferðir eru eftir fram að landsleikjahléi.

Þór/KA er í 4. sæti í Bestu deildinni þegar tvær umferðir eru eftir fram að landsleikjahléi.

Canon

Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

Jói um gula spjaldið: Greinilega mikið að gera hjá dómaranefndinni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.