Fotbolti.net
12.06.26 - 01:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dressmann

Jói Ástvalds spáir í leiki dagsins á HM

Jóhann Páll Ástvaldsson.

Jóhann Páll Ástvaldsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Annar dagur á HM í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó er genginn í garð. Opnunarleikurinn á mótinu var vægast sagt áhugaverður þar sem Mexíkó vann 2-0 sigur á Suður-Afríku og þrjú rauð spjöld fóru á loft.

Jóhann Páll Ástvaldsson, íþróttafréttamaður á RÚV, spáir í leiki dagsins á HM.
HM: Opnunarleikurinn fer í sögubækurnar
TENGT EFNI

HM: Opnunarleikurinn fer í sögubækurnar

Suður-Kórea 2 - 0 Tékkland (02:00 í nótt)
Það er í raun með ólíkindum að Tékkar séu með á þessu móti. Sá gamli jálkur Miroslav Koubek (eini þjálfarinn á mótinu sem er að stýra sinni eigin þjóð) er búinn að smíða eitthvert harðasta og leiðinlegasta lið sem ég hef á ævi minni séð. Að kreista út sigra gegn Írum og Dönum í umspili var í raun ótrúlegt.

Þetta eru ekki Tékkarnir frá EM 2004, það er ljóst. Hitinn mun fara illa í Soucek og Coufal. Risinn Tomas Chory og brokkarinn Lukas Provod eru einhverjir fyndnustu mennirnir á mótinu til að fylgjast með. Krejci breytist samt í einhvern Beckenbauer libero spilara þegar hann klæðist rauðu treyjunni. Hann og Sulc verða þeir einu sem geta gengið frá mótinu beinir í baki.

Ef Tékkarnir skora á þessu móti verður það eftir fast leikatriði.

Lokaður leikur á vampíruvaktinni. Lee Kang-in lúðrar honum inn af teighorninu og óvæntur Paik, miðjumaður Birmingham, skorar eftir klafs. 2-0 sigur Suður-Kóreumanna sem trítla upp á hótel og sofna út frá mukbang vídjóum

Kanada 1 - 0 Bosnía og Hersegóvína (klukkan 19:00)
Ismael Kone mun eiga frábært mót þrátt fyrir að De Zerbi hafi gert sitt besta til að brjóta þann ágæta mann í Marseille. Jesse Marsch er svo yndislega bilaður að þetta mun einhvern veginn ganga upp hjá honum. Hringir í vin sinn Láka og fær góð ráð fyrir leiki. Kanada menn skakklappast í nokkur góð úrslit.

Fyrst og fremst er hugur minn hjá Asmir Begovic í þessum leik. Guð má vita hverjum hann heldur með í þesum leik.

Díaspóru lið Bosníu verður í brasi undir björtu ljósunum í Toronto. Cyle Larin treður boltanum inn. 1-0 hark sigur.
Suður-Kórea mætir Mexíkó í nótt.

Suður-Kórea mætir Mexíkó í nótt.

Canon

Mynd: EPA

Jesse Marsch, landsliðsþjálfari Kanada.

Jesse Marsch, landsliðsþjálfari Kanada.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.