Ekki er víst að landsliðskonan Ída Marín Hermannsdóttir muni klára tímabilið með FH en mikill áhugi er á henni erlendis frá.
Þetta kom fram í Uppbótartímanum á dögunum.
Þetta kom fram í Uppbótartímanum á dögunum.
„Það er bara spurning hvort að Ída muni klára tímabilið með FH," sagði Magnús Haukur Harðarson.
„Í fyrra voru þrjár seldar út og það er líklegt að næsta skref hjá Ídu sé atvinnumennska."
Arnar Páll Garðarsson sem var í þættinum segist hafa heyrt það að Ída stefni á að klára tímabilið með FH en að sama skapi séu mörg félög að bjóða í hana og að reyna að fá hana.
Ída Marín hefur komið mjög sterk inn í A-landsliðshópinn að undanförnu og byrjaði síðasta leik gegn Spáni.

