Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 15:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nökkvi tók þátt í sögulegu afreki - „Talað mjög hátt um það í Hollandi"
Lánaður til Telstar í vetur.
Lánaður til Telstar í vetur.
Mynd: Telstar
Gekk í raðar Spörtu fyrir einu og hálfu ári síðan.
Gekk í raðar Spörtu fyrir einu og hálfu ári síðan.
Mynd: Sparta Rotterdam
Sparta fylgdist með Nökkva tímabilið 2022 hjá KA.
Sparta fylgdist með Nökkva tímabilið 2022 hjá KA.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Sóknarmaðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson (1999) var í janúar 2025 keyptur til Sparta Rotterdam í Hollandi frá St. Louis City í Bandaríkjunum. Í janúar á þessu ári var hann lánaður til Telstar þar sem hann kom við sögu í sjö leikjum, skoraði eitt mark og lagði upp eitt.

„Lífið í Hollandi er æðislegt, ég fíla mig mjög mikið þar og líður mjög vel. Borgin er góð, liðið er gott og mér finnst þetta mjög mikið ég," sagði Nökkvi við Fótbolta.net í viðtali sem tekið var á Dalvík um liðna helgi. Viðtalið má sjá í spilaranum neðst.

Hann var spurður út í tímann hjá Telstar.

„Það gekk eiginlega fáránlega vel, ég vissulega meiðist eftir (sjö) leiki, en spilamennska liðsins (var góð) og þegar ég var að spila var mjög gaman. Fyrir þetta lið að halda sér upp í úrvalsdeildinni, það er talað mjög hátt um það í Hollandi að þetta hafi í raun verið sögulegt. Það kom mikið á óvart, peningurinn er enginn (mjög lítill), mjög lítið lið og þjálfarinn talaði um að þetta færi í sögubækurnar. Það er gaman að vera lítill partur af því."

„(Munurinn á Spörtu og Telstar) er aðallega peningalega og í aðstöðunni, Sparta er rótgróinn eldri klúbbur og þekktari."


Er horft á Telstar sem B-deildar klúbb?

„Jafnvel bara neðar, ég vissi ekkert hvaða lið þetta var þegar þjálfarinn hringdi. Hann vildi mikið fá mig og það er alltaf góðs viti. Staðan var líka þannig að (Tobias) Lauritsen, framherji Spörtu, var ekki að fara í janúar. Það var mjög mikilvægt fyrir Spörtu að ég færi (annað að spila) og kæmist í takt því Lauritsen er núna farinn. Sparta gerði mér það mjög ljóst að ég þyrfti að vera tilbúinn þegar hann færi og vera kominn í takt og mér fannst það bara flott. Degi eftir samtalið fékk ég hringingu frá Telstar og mér leist mjög vel á þjálfarann, hann er einmitt sú týpa sem ég fíla, þetta var stuttu fyrir gluggalok og ég pældi ekki í öðru (en þjálfaranum). Ég hoppaði á það og ég er hreinskilinn með það að það var mjög skemmtileg reynsla."

Nökkvi missti af síðustu fimm leikjum liðsins vegna meiðsla.

„Ég er byrjaður að hlaupa og ég held ég gæti byrja að æfa fótbolta í næstu viku. Ég tognaði aftan í læri (í mars) og þegar ég er að koma til baka, prófa mig áfram, þá finn ég til í hásininni. Það var skoðað nánar og tók aðeins lengri tíma að ná mér en ég vonaði. Undir lok tímabilsins voru stórir leikir fyrir Telstar að halda sér uppi, en það hefði verið galið fyrir mig að taka þátt í þeim leiknum og mögulega gera meiðslin enn verri. Við tókum sameiginlega ákvörðun, klúbbarnir og þjálfarinn, að það væri betra að hvíla fyrir næsta tímabil heldur en að vera að þrýsta á þetta á þeim tímapunkti. Ég er þakklátur fyrir það núna því ég er að koma til. (Telstar hélt sér svo uppi), þannig þetta fór allt eins vel og hægt var."

Nökkva líður betur í Hollandi en í Bandaríkjunum.

„Þetta er allt annað, maður getur alltaf tekið jákvætt úr öllu, en mér finnst þetta bara miklu meira kúltúrinn fyrir mig, maður er nær fjölskyldunni, auðveldara fyrir þau að koma út (í heimsókn) og auðveldara fjölskyldulíf fyrir konuna líka. Þetta tikkar í fleiri box (en Bandaríkin), svo finnst mér boltinn líka skemmtilegri og það hjálpar til."

Sparta Rotterdam hafði mikinn áhuga á Nökkva árið 2022 þegar hann varð markakóngur Bestu deildarinnar með KA.

„Ég vissi því hvaða lið þetta var, en ég vissi bara að þetta væri stabílt hollenskt úrvalsdeildarfélag. Svo fer maður á fund með þeim og þeir segja manni betur frá félaginu," segir Nökkvi.

Miðað við svör Nökkva horfir Sparta á hann í nokkuð stóru hlutverki fyrir komandi tímabil. Norski framherjinn Tobias Lauritsen er orðinn samningslaus og því opnast þar möguleiki fyrir Nökkva.
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
Slapp
banner