12.07.13 - 21:52
Ívan Guðjón Baldursson
Fulham selt til Shahid Khan (Staðfest)

Khan hefur aldrei unnið við pípulagningar.

Mynd: Getty Images

Shahid Khan er búinn að kaupa Fulham af Mohamed Al Fayed eftir 16 ára veru Egyptans í forsetastól félagsins.
Khan er eigandi bandaríska NFL liðsins Jacksonville Jaguars og varð milljarðamæringur meðal annars vegna bílapartafyrirtækis sem hann á.

Al Fayed og Khan stunduðu viðskiptin í mikilli leynd og því hefur verið lítið rætt um þetta, en nú eru kaupin staðfest.
,,Mohamed Al Fayed er búinn að selja knattspyrnufélagið Fulham til Shahid Khan, framkvæmdastjóra Flex-N-Gate Group og eiganda Jacksonville Jaguars í NFL deild Bandaríkjanna,\" stendur á opinberri vefsíðu Fulham.
,,Eigendaskiptin hafa verið samþykkt af ensku úrvalsdeildinni og eignast Khan 100% hlut í félaginu skuldlaust, frá og með deginum í dag.\"
Talið er að Khan, sem flutti til Bandaríkjanna frá Pakístan sem táningur, sé tvisvar sinnum ríkari en Al Fayed og því gæti Fulham gert góða hluti á leikmannamarkaðinum strax í sumar.
Khan er í 179. sæti yfir ríkustu menn Bandaríkjanna samkvæmt Forbes og nema eigur hans um 1.65 milljarð punda, eða rúmlega 305 milljörðum (305.151.000.000) íslenskra króna.
Khan er þegar tengdur inn í London þar sem Jaguars spila einn leik á Wembley á tímabili næstu fjögur árin.