Fotbolti.net
12.07.13 - 06:00
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Jose Callejon til Napoli (Staðfest)

Jose Callejon.

Jose Callejon.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski framherjinn José Callejon hefur yfirgefið Real Madrid og er genginn í raðir Napoli á fjögurra ára samning.
Ekki er gefið upp hve hátt kaupverðið er, en þetta er í annað sinn á ferlinum sem Callejon er seldur frá uppeldisfélagi sínu.

Eftir að hafa stigið sín fyrstu skref með aðalliði Real var hann seldur til Espanyol þar sem hann lék í þrjú ár. Real keypti hann aftur árið 2011 og skoraði hann 8 mörk í 55 deildarleikjum á þessum tveimur árum.

Callejon stóð sig hinsvegar afar vel í Meistaradeild Evrópu yfir sama tímabili, en þar skoraði hann samtals 7 mörk í einungis 9 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.