Fotbolti.net
12.07.15 - 21:07
Ingunn Hallgrímsdóttir

Jóhannes: Gunnar Heiðar klár í næsta leik

Auglýsing
Jóhannes Harðarson

Jóhannes Harðarson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Harðarson, var svekktur í leikslok eftir að hafa séð sína menn tapa 3-1 fyrir ÍA.
Það er þó engan bilbug að finna á Jóhannesi og hann hefur trú á að sínir menn komi sterkir til baka í stað þess að gefast upp.

„Það þýðir ekki neitt. Við þurfum bara að halda áfram og koma okkur aftur upp á tærnar. Ég hef enga trú á öðru en að strákarnir rífi sig upp eftir þetta og bregðist við á réttan hátt\".

Þjálfaramál ÍBV hafa verið í deiglunni undanfarið en liðið er án aðstoðarþjálfara eftir að Tryggvi Guðmundsson var rekinn í síðustu viku. Jóhannes segir ekkert vera ákveðið í þeim málum.

„Nei. Við erum að vinna í þessum hlutum ennþá. Við höfum leyst þetta ágætlega hingað til. Við erum að reyna að finna eins skynsama lausn á þessu eins og hægt er.\"

Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, hefur verið Eyjamönnum innan handar síðustu daga.

„Heimir er náttúrulega mikill Eyjamaður og ÍBV-maður og við höfum fengið ráð og leitað til hans þannig að það er bara mjög jákvætt.\"

Það var tilkynnt nýlega að Gunnar Heiðar Þorvaldsson hefði skrifað undir samning við ÍBV og reiknar Jóhannes með honum á æfingu á morgun.

„Gunnar Heiðar kemur vonandi á morgun og getur byrjað að æfa með okkur strax. Hann verður klár í næsta leik\", sagði Jóhannes.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.