Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   sun 12. júlí 2020 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Chelsea skoðar Henderson - Gerrard eða Terry til Bristol City
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Sunndugsslúðrið er í boði Powerade og er það BBC sem tekur saman það helsta.



Borussia Dortmund mun ekki samþykkja lægra tilboð en 130 milljónir evra í Jadon Sancho (20) sem er skotmark Manchester United. (MEN)

Kalidou Koulibaly (29) segir að hann gæti lokið ferlinum með Napoli þrátt fyrir að hafa verið orðaður við Liverpool, Man City, Man Utd og Real Madrid. (Gazzettan)

Barcelona hefur gefist upp á að fá Neymar (28) aftur til félagsins frá PSG. (Marca)

Manchester City skoðar að framlengja samning Sergio Aguero (32) um eitt ár og binda hann út þarnæsta tímabil. (Mirror)

Chelsea ætlar að spyrja Manchestr United hvað Dean Henderson (23) kostar. Framtíð Kepa Arrizabalaga er í óvissu (Express).

Tottenham ætlar að neita öllum tilboðum í Ryan Sessegnon (20) í sumar. Barcelona hefur áhuga. (Star)

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir að Kieran Tierney (23) muni ekki fara frá Arsenal í sumar. (Standard)

Leicester, AC Milan og Chelsea skoða öll að fá Luka Jovic (22) frá Real Madrid. (Mundo Deportivo)

Bristol City vill fá Steven Gerrard sem næsta stjóra félagsins. John Terry hefur einnig áhuga. (Express)

Juventus og Manchester City hafa áhuga á Thiago Alcantara (29) en áður hefur verið greint frá áhuga Liverpool. (Tuttomercato)

Chelsea og Inter hafa hafið viðræður við Lille um Jonathan Ikone (22) framherja félagsins. (Le 10 Sport)

Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, segist óvsiss hvort James Rodriguez (28) muni spila aftur fyrir Real. (AS)

Juvenus og Inter vilja bæði fá Nicolo Zaniolo (21) frá Roma í sumar. (TuttoSport)

Barcelona mun þurfa að greiða Borussia Dortmund 20m evra ef félagið selur Ousmane Dembele (23) í sumar. (Bild)

Chelsea, Man City og Juventus fylgjast með Facundo Pellistri (18) vængmanni Penarol. (Calciomercato)
Athugasemdir
banner
banner
banner