Fotbolti.net
12.08.21 - 22:22
Elvar Geir Magnússon

Erlingur: Allir í beyglu!

Auglýsing
Erlingur: Allir í beyglu!
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
„Það er ekki annað hægt en að vera hress eftir þennan leik," segir Erlingur Agnarsson sem var maður leiksins, með mark og stoðsendingu, í 3-1 sigri Víkings gegn KR.

Víkingar komust þar með í 8-liða úrslit keppninnar en þeir voru tveimur mörkum yfir í hálfleik.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 - 1 KR
„Við töluðum um það í hálfleik að reyna að ná inn þessu mikilvæga þriðja marki."

Erlingur skoraði sitt fyrsta mark á tímabilinu og segir það ljúft að ná því loksins inn.

„Þetta hefur verið erfitt, gott að ná loksins inn þessu marki og vonandi heldur þetta áfram. Við erum í bullandi baráttu í deildinni og áfram í bikarnum."

Erlingur kemur að beyglustað sem opnaði nýlega í Skeifunni, eins og sjá má í Instagram færslunni hér að neðan.

„Geggjaðar beyglur í Hagkaup í Skeifunni. Allir í beyglu," sagði Erlingur í lok viðtalsins í kvöld eftir að hafa verið spurður út í umræddan stað.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.