Fotbolti.net
12.08.26 - 09:15
Elvar Geir Magnússon

Hall efstur á blaði Man Utd - Mudryk gæti farið til Coventry

Lewis Hall er orðaður við Manchester United.

Lewis Hall er orðaður við Manchester United.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Almyrkvi á sólu verður á sjötta tímanum í dag en hann skyggir þó ekki á að enska úrvalsdeildin er handan við hornið og nóg í gangi á leikmannamarkaðnum.
Manchester United er með vinstri bakvörðinn Lewis Hall (21) hjá Newcastle í forgangi en enski landsliðsmaðurinn vill fara á Old Trafford. (Sun)

Chelsea og Manchester United hefur verið boðið að kaupa Myles Lewis-Skelly (19) frá Arsenal. (Football London)

Manchester United íhugar að gera fyrsta tilboð í vinstri bakvörðinn Joaquin Seys (21) hjá Club Brugge en hann er metinn á 30 milljóiur punda. (Mirror)

Manchester United hefur einnig sýnt áhuga á að fá brasilíska framherjann Endrick (20) lánaðan frá Real Madrid en Jose Mourinho vill halda honum. (Mirror)

Chelsea er tilbúið að lána úkraínska kantmanninn Mykhaylo Mudryk (25). Nýliðar Coventry City eru meðal þriggja úrvalsdeildarfélaga sem hafa áhuga. (Football London)

Barcelona er vongott um að landa spænska miðjumanninum Rodri (30) og hefur lagt fram nýtt tilboð til Manchester City að verðmæti 51,3 milljóna punda. (Times)

Inter er í viðræðum við Tottenham um enska hægri bakvörðinn Djed Spence (26). Mögulegt er að Ítalíumeistararnir kaupi hann fyrir 26 milljónir punda en hann hefur áhuga á að fara til þeirra. (Athletic)

Napoli skoðar möguleika á að fá brasilíska framherjann Gabriel Jesus (29) en Arsenal mun aðeins hlusta ef fyrsta tilboð verður 20 milljónir evra eða meira. (Caught Offside)

Senegalski kantmaðurinn Iliman Ndiaye (26) hjá Everton hefur hafnað því að fara til Al-Hilal í Sádi-Arabíu þar sem hann vill vera áfram í ensku úrvalsdeildinni. (Fabrizio Romano)

Everton vill fá hægri bakvörð en meðal nafna á blaði eru Kanadamaðurinn Alistair Johnston (27) hjá Celtic, Kongómaðurinn Aaron Wan-Bissaka (28) hjá West Ham og Englendingurinn Brooke Norton-Cuffy (22) hjá Genoa. (The i)

Enski miðvörðurinn Mofe Jemide (19) hjá Crystal Palace færist nær því að ganga í raðir Alverca í efstu deild Portúgals. (Sky Sports)
Mudryk gæti verið lánaður.

Mudryk gæti verið lánaður.

Canon

Mynd: EPA

Iliman Ndiaye.

Iliman Ndiaye.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.