Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 12. september 2020 22:06
Ívan Guðjón Baldursson
Dion Acoff verður ekki frá lengi - Stefnir á Keflavík
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Guðmundsson, þjálfari Þróttar R., fór í viðtal eftir jafntefli við Magna í fallbaráttuslag í dag.

Þar ræddi hann meðal annars um Dion Acoff, einn af mikilvægustu leikmönnum liðsins, sem meiddist í sigri gegn Vestra fyrir viku síðan.

Orðrómur var uppi um að Dion yrði frá út tímabilið en Gunni segir ekkert til í því.

„Þetta er bara smávægileg tognun þannig ég geri ráð fyrir honum í næstu viku. Ég veit ekki hvort hann nái næsta leik en hann ætti að vera klár í leik eftir viku," sagði Gunni.

Þróttur á heimaleik gegn Aftureldingu á miðvikudaginn áður en liðið heimsækir toppbaráttulið Keflavíkur næsta sunnudag.

Líklegt er að Tyler Brown, sem er að láni frá Crystal Palace, verði með í næsta leik gegn Aftureldingu. Hann er búinn í sóttkví og hefur náð einni æfingu með Þrótti.

„Við sáum á fyrstu æfingu að þetta er vel skólaður strákur sem kann að spila fótbolta. Hann þarf að koma sér aðeins betur í gírinn bara."

Þróttur er einu stigi fyrir ofan fallsæti sem stendur, með 12 stig eftir 15 umferðir.

Sjá viðtalið í heild.
Athugasemdir
banner
banner