Fotbolti.net
12.09.20 - 18:39
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Frankfurt búið að kaupa Andre Silva (Staðfest)

Frankfurt búið að kaupa Andre Silva (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Eintracht Frankfurt er búið að festa kaup á portúgalska sóknarmanninum Andre Silva sem skoraði í öðrum hverjum leik að láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Silva er portúgalskur landsliðsmaður og hefur skorað 16 mörk í 35 landsleikjum. Hann þótti gífurlega mikið efni á tíma sínum hjá Porto og var talinn til efnilegustu sóknarmanna Evrópu.

Silva er 24 ára gamall og gengur í raðir Frankfurt eftir misheppnaða dvöl hjá AC Milan. Ante Rebic, framherji Frankfurt, fer til Milan í staðinn.

Kaupverðið á Silva er óuppgefið en talið nema um 10 milljónum evra. Milan er aftur á móti talið greiða rúmlega 20 milljónir evra fyrir Rebic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.