Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 12. október 2020 18:19
Victor Pálsson
Craig Dawson til West Ham (Staðfest)
Mynd: Getty Images
West Ham hefur gert samning við varnarmanninn Craig Dawson en hann kemur til félagsins frá Watford.

Dawson er þrítugur að aldri en hann skrifar undir lánssamning við West Ham út þessa leiktíð.

Dawson hefur spilað með Watford frá árinu 2019 en er þekktastur fyrir tíma sinn hjá West Bromwich Albion frá 2010 til 2019.

Watford féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og fékk Dawson því leyfi að semja við annað félag.

Englendingurinn spilaði alls 30 leiki fyrir Watford á síðasta tímabili og þar af 29 í deild.

Athugasemdir
banner
banner