12.10.21 - 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Oxlade-Chamberlain íhugar að yfirgefa Liverpool

Alex Oxlade-Chamberlain.

Mynd: EPA

Alex Oxlade-Chamberlain.

Mynd: EPA
Götublaðið <i>Mirror</I> skrifar um það að Alex Oxlade-Chamberlain sé að hugsa um að yfirgefa herbúðir Liverpool.
Hinn 28 ára gamli Oxlade-Chamberlain hefur aðeins byrjað einn leik í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Hann vill fá að spila meira og sér ekki rosalega mikla möguleika á að það gerist hjá Liverpool.
John Cross, sem er yfir íþróttadeild Mirror, skrifar greinina. Hann segir að þetta geti kveikt áhuga Arsenal, fyrrum félags Oxlade-Chamberlain.
Miðjumaðurinn vill koma sér aftur í myndina hjá enska landsliðinu og til þess að gera það, þá þarf hann að spila.
Oxlade-Chamberlain fór til Liverpool frá Arsenal árið 2017. Hann hefur átt góð augnablik hjá Liverpool en meiðsli hafa strítt honum mikið.