Frændi Alberts: Hann fer frá Genoa í janúar

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Albert Brynjar Ingason sagði í þætti sínum Gula Spjaldið að Albert Guðmundsson myndi fara frá Genoa í janúar. Þá á leikmaðurinn tvö og hálft ár eftir af samningi sínum ef marka má Transfermarkt. Albert Brynjar er frændi Alberts Guðmundssonar.
Hann hefur verið orðaður við stórlið í Serie A á árinu; Roma, Juventus, Inter, Napoli, Lazio, Fiorentina og AC Milan hafa öll verið orðuð við kappann - allar systurnar sjö.
Hann hefur verið orðaður við stórlið í Serie A á árinu; Roma, Juventus, Inter, Napoli, Lazio, Fiorentina og AC Milan hafa öll verið orðuð við kappann - allar systurnar sjö.
„Ég er ekki kominn með liðið sem hann fer í, það eru öll stóru liðin búin að sýna honum áhuga. Hann er að fara í nýtt lið í janúar. Eitt af þessum stóru liðum hefur sýnt honum mestan áhuga. Ég kem ekki með neitt út nema hann gefi mér grænt ljós. Hann er að bíða eftir öðru (stórliði), er ekki alveg nógu hrifinn af þessu stórliði (sem hefur sýnt mestan áhuga)," sagði Albert Brynjar.
Albert er 26 ára sóknarmaður sem gekk í raðir Genoa fyrir einu og hálfu ári síðan. Genoa féll í B-deildina vorið 2022 en komst upp síðasta vor með Albert í lykilhlutverki. Hann hefur farið vel af stað á þessu tímabili og er í algjöru lykilhlutverki í liðinu. Hann hefur skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í samtals níu leikjum í deild og bikar.

AI - Ragnar Bragi & Óskar Borgþórsson.
— Gula Spjaldið (@gulaspjaldid) October 12, 2023
Fram og Fylkir vilja Hans Viktor og Prinsinn úr Árbænum með stórt skúbb.https://t.co/HWyP09N30a