Fotbolti.net
12.10.23 - 12:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Borgþórs orðar fyrirliða KR við FH

Óskar Borgþórs orðar fyrirliða KR við FH
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Óskar Borgþórsson, leikmaður Sogndal í Noregi og U21 landsliðsins, var gestur í hlaðvarpsþættinum Gula Spjaldið í gær.

Í yfirferð um Bestu deildina kom Óskar með mola um framtíð Kennie Chopart sem er að renna út á samningi hjá KR.

Danski varnarmaðurinn, sem var fyrirliði KR á tímabilinu, hefur verið í Vesturbænum síðan 2016.
„Ég heyrði að hann væri að fara í FH, mjög líklegur að fara í FH," sagði Óskar.

Kennie er 33 ára og spilaði bæði sem hægri bakvörður og svo hægri miðvörður í þriggja miðvarða varnarlínu á tímabilinu.

Hann kom fyrst til Íslands árið 2012 og lék þá með Stjörnunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.